Nýjustu skrif sama notanda:

12. 08 2026 - kl. 21:10
28. 04 2026 - kl. 12:12
25. 03 2026 - kl. 3:53
25. 03 2026 - kl. 3:49
22. 01 2026 - kl. 23:43
13. 01 2026 - kl. 21:21
26. 11 2025 - kl. 22:15
26. 11 2025 - kl. 21:26
8. 11 2025 - kl. 0:37
31. 10 2025 - kl. 9:33
3. 02 2025 - kl. 21:24
9. 10 2024 - kl. 2:43
18. 09 2024 - kl. 17:51
15. 06 2024 - kl. 21:41
11. 06 2024 - kl. 9:46
Punduli
Fimmtudagurinn 6. nóvember 2008 kl. 18:49
Flokkur: Spjaldið

Svo var, hérna, einu sinni sko kona, sem var svaka falleg, eins og prinsessa. Og hún var rosa góð söngkona, nema hún þorði aldrei að syngja því hún var hrædd um að allt fólkið myndi fara að benda og híja á hana. Þannig að hún fór í staðinn í burtu úr litla bænum sínum og byrjaði að vinna sem kokteilveitingadama í stórborginni. Svo kom ríkur kvennabósi inn og missti einhverja sultu ofan á hana og hún varð reið og fór en hann varð ástfanginn og reyndi að leita að henni en sá hana ekki og vinir hans skildu ekki af hverju hann var hættur að vera asni eins og þeir. Svo fann hana aftur og kenndi henni að syngja á sviði og svo þegar hún átti að syngja í alvörunni þá missti hann af því og hún varð svaka reið aftur. Svo sleppti hann því að útskýra af hverju hann varð seinn og gaf henni í staðinn uppáhalds myglusveppinn hennar og þá byrjuðu þau sko saman í alvöru.
Vesen 2009