Ég fer nú líklega Austur á heimaslóðirnar á morgun. Geri mér vonir um að ná að slappa eitthvað af. Ætla ekki að gera við eina einustu tölvu yfir hátíðirnar (veit samt að það á ekki eftir að rætast) og helst ekki að vinna handtak. Fyrir liggur að byrja að skrifa lokaritgerð en ég er ekkert ógurlega bjartsýnn á að ég eigi eftir að nenna því.
Á sunnudaginn er stysti dagur ársins. Nógu stuttur er hann fyrir. Þeir segja núna að Jesú hafi fæðst 17. júní eins og Jón Sigurðsson. Munurinn er kannski sá að Jón Sigurðsson var til og hafði rangt fyrir sér en Jesú var ekki til og hafði rétt fyrir sér. En María var víst 12-13 ára þegar hún átti að hafa eignast snáðan þannig að það er kannski eins gott að þetta er allt saman uppspuni.
Jón Sigurðsson skorti heldur ekki hugsjónirnar, frekar en byltingasinnuðu Gyðingarnir í denn. Jón er næstum því fæddur í Dýrafirði eins og amma Stína og bjó á Laugarnesinu eins og amma. Jón var líka sjálfstæðissinni eins og ömmur almennt og Jesús Kristur sonur Maríu, Jósefs, Guðs og ímyndunarafls pópúlista við miðjarðarhaf 800 árum fyrir okkar landnám.
Hugsjónir þær sem kenndar eru við Jesú, en hafa oftast litla viðdvöl í siðferðiskennd meginþorra kristinna manna, eru góðar og gildar enn þann dag í dag. Sjálfstæðishugsjónirnar þarfnast endurskoðunar. KPMG ætti ekki að koma nálægt því verki.
Ég hef alltaf verið bölvaður helvítis kommúnisti, eins og Jesú, nema að hann var ekki bölvaður eða helvítis. Ekki fyrirfram, heldur yfirleitt eftirá. Þ.e.a.s. réttlætiskennd mín og hugsjónir virðast teygja sig í sömu áttir og kommúnisminn, líkt og hann var hugsaður. En kommúnisminn, líkt og kristni, leið fyrir mannlegan breyskleika og verður því seint æskileg til framkvæmdar á stórum skala.
Frá því að ég skrifaði síðustu setningu og þangað til núna þurfti ég að vinna í 20 mínútur og er búinn að steingleyma hvert ég var að fara með þessu röfli.

