Punduli
Laugardagurinn 12. desember 2009 kl. 3:49
Flokkur: Spjaldið
Ég fór í heimsókn til internetþjónustuaðilans míns um daginn til að fá kaffi og ræða nokkur mál.
Ég var nýbúinn að láta minnka tenginguna hjá mér úr 50 mbps niður í 25 mbps og spurði þjónustumanneskjuna þar hvort það væri komið í gegn. Hún jánkaði því og ég bætti við að það hefði verið vegna þess að það mældist ekki hærra en 14 mbps í niðurhali. Hún spurði mig þá hvort að ég hefði tekið hraðaprófið þeirra og ég svaraði játandi. Þá hreytti hún út úr sér að það væri ómögulegt þar sem að það var bara sett á síðuna þeirra daginn áður. Ég svaraði henni að ég hefði talað við þjónustufulltrúa í gegnum síma tveimur mánuðum áður sem benti mér á hraðapróf til að mæla tenginguna og fór ég eftir þeim leiðbeiningum. Ég var ekki að hugsa um hvort það væri á þeirra síðu eða ekki, enda fannst mér það skipta minnstu máli. Aftur á móti finnst mér skipta einhverju máli þegar að starfsmenn fyrirtækis spyrja spurninga sem er bara eitt svar við í þeirra huga. Það var eins og hún væri að leiða mig í gildru af einhverjum óljósum ástæðum.
Á ég að komast að því hvar hún á heima og panta pizzu heim til hennar?
Sem ég myndi að sjálfsögðu borga, en hún væri eingöngu með ananas.

Vesen 2009