Drengur
Fimmtudagurinn 26. apríl 2012 kl. 14:56
Flokkur: Spjaldið
Grafalvarlegt mál!
Ógnar landi voru vá.
Vonin kemur aldrei aftur
ef Guinness get ei þjórað, þá
mitt þrýtur líf og kraftur.
Raðir þéttum og þreyjum.
Þor í brjóstið berjum.
við sökudólga segjum:
„Sorta Arthúrs verjum!“
Oft var þörf en nauðsyn nú
er níðingsverkin unnin;
Við þurfum dyggðir, traust og trú,
vor tregastund er runnin.
Til sigurs synir Arthúrs allir!
Armageddon færum þeim!
Rífum niður heimskunnar hallir,
hyglum Guinness um allan heim!
Ógnar landi voru vá.
Vonin kemur aldrei aftur
ef Guinness get ei þjórað, þá
mitt þrýtur líf og kraftur.
Raðir þéttum og þreyjum.
Þor í brjóstið berjum.
við sökudólga segjum:
„Sorta Arthúrs verjum!“
Oft var þörf en nauðsyn nú
er níðingsverkin unnin;
Við þurfum dyggðir, traust og trú,
vor tregastund er runnin.
Til sigurs synir Arthúrs allir!
Armageddon færum þeim!
Rífum niður heimskunnar hallir,
hyglum Guinness um allan heim!
Vesen 2009

