Punduli
Mánudagurinn 10. mars 2008 kl. 3:23
Flokkur: Spjaldið
Ég er alveg sammála honum með það, mörg trúarbragða heimsins eru fáránleg og byggð á algjörri dellu. En hann virðist setja þetta allt undir sama hatt, Óðinn, Jesús, Búddha, Joseph Smith, Spagettískrímslið og aðrar skilgreiningar á hvað er Guð. Vissulega er margt af þessu fáránlegt en sumt er það alls ekki. Ég trúi ekki á einhverja persónu sem er Guð. Ég lít meira á Guð sem einhverskonar lögmál sem umlykur okkur. Hluti af náttúrunni. Rétt eins og Einstein ímyndaði sér. Þegar ég heyri Richard Dawkins tala, þá finnst mér sem hann sé að segja að það sem að ég trúi sé della, það er ekkert til nema það sem hann hefur rannsakað vísindalega og það sé enginn möguleiki á því að neitt stærra en við gæti verið þarna úti. Síðan segir hann alltaf að hann geti auðvitað ekki vitað það 100%, þó það sé auðvitað bara svona standard disclaimer því það er ekki hægt að sanna það, en með því er hann samt að segja að það sé svoleiðis.
Vesen 2009

